Nakinn Hannes

3. sept '07

27.11.2007 15:21:36 / nakinnhannes

Æfing

Æfing í kvöld klukkan 20:00

Þriðjudaginn 27.nóvember.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 13:49:13 / nakinnhannes

ÆFING Í KVÖLD!!!!

Æfing í kvöld, 20. nóvember kl. 20:00 á gervigrasinu!

allir að mæta!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 17:09:04 / nakinnhannes

ÆFING KL. 8!

Fyrsta æfingin í langan tíma verður á gervigrasinu kl. 8 í kvöld, þriðjudag 13. nóvember!

ALLIR AÐ MÆTA!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 18:17:57 / nakinnhannes

Æfing kl. 9!

Æfingin í kvöld, þriðjudaginn 23. okt. verður kl. 21:00 á gervigrasinu í Þolló.

ALLIR AÐ MÆTA beint eftir meistaradeildina!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 08:59:20 / nakinnhannes

Aðalmennirnir

Jeeeee

Talið frá vinstri; Gunnar Torfi, Vignir, Bjarni Már, Ingimar og Arnar Þór


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 17:10:02 / nakinnhannes

Æfing kl. 8

Æfing í kvöld, þriðjudaginn 16. okt, kl. 20:00 á gervigrasinu í Þorlákshöfn!

vertu þar eða vertu ferhyrningur!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 17:21:14 / nakinnhannes

Æfing!

Miðvikudagurinn 10. oktober 2007

Allir að mæta á æfingu Kl: 19.30

Á Gervigrasvelli Þorlákshafnar!!

Koma svo..reynum að fá fleiri en tíu á þessar æfingar..er það ekki?!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 18:04:42 / nakinnhannes

Æfing!

Jæja strákar..Þriðjudagurinn 9. oktober 2007.

Æfing á Gervigrasinu í Þorlákshöfn

Kl: 20.00

Allir að mæta svo það verði eitthvað vit í þessu hjá okkur!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 17:18:51 / nakinnhannes

Sunnudagsæfing!

Æfing í dag, sunnudag kl. 18:30 á gervigrasinu!

Allir að mæta.. þetta verður eintóm geðveiki.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 13:02:12 / nakinnhannes

Æfing kl 5 í dag

Æfing í dag kl 5. föstudaginn 5 október á gervigrasinu, allir að mæta!!! Kv. Stjórnin

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 19:07:46 / nakinnhannes

Engin æfing!

Æfingu í kvöld er frestað vegna meistaraflokksæfingar sem er kl. 9:klikk: inni.

Öllum er frjálst að mæta þangað:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 18:08:21 / nakinnhannes

Æfing

Æfing kl. 21 í kvöld á gervigrasinu, eftir meistaradeildina.

ÁFRAM CHELSEA!!

 

ps. ég mæti ekki á æfingu ef að Chelsea tapar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 18:33:07 / nakinnhannes

ÆFING Í KVÖLD

Æfing kl 8  sunnudaginn 30.9    K.V Stjórnin

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 17:49:09 / nakinnhannes

vs. FC Kompás

Leikur: Nakinn Hannes -  FC Kompás 2-4 (1-1)
Dagur: Föstudagur 22. september
Tími: 19:00
Leikstaður: Selfossvöllur
Áhorfendur: 50-60
Veður:  Milt veður, frekar kalt.
Dómari: Brynjar Þór
Línuverðir: Einhver 10 ára strákur?? og Kjarri/Anton.
Mörk: 
Nakinn Hannes: Arnar(víti), Nonni
FC Kompás: Árni Steinn 2, Viðar, Mummi
Gul spjöld: Nokkur
Rauð spjöld: Engin

Byrjunarlið Nakins Hannesar

                           Davíð (GK)

Hafsteinn -- Bjarni Már(C) -- Ómar Gu. -- Arnar Þór

Rúnar --- Guðmundur Karl --- Vignir --- Elías

                Ingvi ------------- Ingimar

Leikurinn fór fjörlega af stað, mikið líf í mönnum enda hafa menn beðið eftir þessum leik með eftirvæntingu alveg heillengi. Við áttum þó í smá erfiðleikum með að láta boltann fljóta í byrjun og voru frekar lengi í gang og frekar kærulausir í vörninni og það endaði með því að Árni Steinn kom FC Kompás yfir með skoti úr teignum. Þá tókum við okkur á og byrjuðum að spila mun betur en áður og baráttuandinn var gríðarlegur sem að þróaðist svo reyndar út í rugl tæklingar og vesen af beggja liða hálfu og var allt á suðupunkti. Bæði lið áttu þó sín færi og það var ca. 5-10 mínútum fyrir hálfleik að við fengum dæmt víti eftir klafs í teignum sem að endaði með því að það var brotið á Elíasi. Arnar tók vítið og skoraði og var staðan í hálfleik jöfn, 1-1.

    Í síðari hálfleik hélt leikurinn áfram og hart mætti hörðu eins og sagt er og fengu nokkrar svakalegar tæklingar að fljúga frá leikmönnum beggja liða án þess að dómarinn sýndi spjöldin, enda kannski lítill tilgangur með því að gefa spjöld hægri vinstri í æfingaleikjum sem þessum. Kompásmenn settu smá pressu á okkur í seinni hálfleik og voru með tvo virkilega sterka leikmenn inná, Viðar og Sigga Eyberg sem að voru allt í öllu í sóknarleik þeirra. Sá fyrrnefndi skoraði einmitt fallegt mark þar sem að hann var með boltann á vítateigshorninu og þrír leikmenn okkar stóðu bara í kringum hann og fylgdust með honum setja boltann snyrtilega í fjærhornið. Þrátt fyrir þetta héldum við áfram að spila okkar bolta og vorum miklu meira með boltann eftir þetta mark. Við vorum bara ekki nægilega beittir upp við markið og fengum nokkur góð færi til að jafna leikinn en þeir draumar fuku út í buskann eftir að FC Kompás skoraði þriðja mark sitt, að mínu mati gegn gangi leiksins. Markið var líka mjög umdeilt, Árni Steinn átti skot eða sendingu að markinu sem að var á leiðinni inn þegar að Bjarni Már náði að skalla boltann upp í slánna og út. Kompás menn byrjuðu að fagna en að mínu mati var þetta ekki mark, dómarinn dæmdi ekki mark í fyrstu en svo fóru leikmenn Kompáss að 10 ára línuverðinum og tala hann til og láta hann nánast dæma mark. Svo að hann dæmir mark, og dómarinn flautar mark, sennilega hálfri mínútu eftir að atvikið átti sér stað. Skrítið atvik en það verður ekki rætt meira. Staðan 3-1 og staða okkar orðin slæm. Við héldum þó áfram að spila og fengum nokkur hálffæri en náðum ekki að nýta okkur það. Guðmundur Karl var sloppinn í gegn og það var brotið á honum, þá hefði ég viljað sjá rautt spjald á miðvörðinn hjá þeim. Ingimar var líka við það að sleppa í gegn og þá var brotið á honum á vítateigslínunni nánast. Ingimar fékk líka einusinni sendingu innfyrir og vippaði yfir markmanninn en var dæmdur rangstæður. Nonni tók aukaspyrnuna og setti hann fast undir vegginn og boltinn hafnaði í netinu. 3-2. Þarna byrjuðu menn svo að verða pínulítið þreyttir og leikurinn hálfpartinn fjaraði út. FC Kompás náðu svo að bæta við einu marki í lokin, það gerði Mummi eftir að hann hafði fengið stungusendingu. 4-2 voru semsagt úrslit þessa leiks.

Skemmtilegur leikur, slæm úrslit, ég held að við höfum átt meira skilið en við fengum.

Ég vil þakka FC Kompás fyrir leikinn og get ekki beðið eftir að spila aftur við þau, einnig vil ég þakka hinum frábæra stuðningshóp Nakins Hannesar fyrir að mæta og skemmta sér með liðinu!

Arnar Þór

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 13:56:25 / nakinnhannes

Sirrý Sæland er beibshow

Leikur í kvöld á Selfossvelli á móti FC Kompás.

Líklegt byrjunarlið Nakins Hannesar:

Heisó (GK)

Hafsteinn, Bjössi (C), Ómar, Arnar skipa vörnina

Rúnar, Nonni, Gummi, Vignir taka miðjuna!

Ingvi, Ingimar:P:lol:

Bekkur:

nóg af beeeer og nóg af geðveikt góðum félögum.

Vá afhverju er sirrý ekki með mullet??

Mæting korter í 6 í Skálann, við fáum búningsklefa á Selfossi og getum farið í sturtu þar og svona..allir saman..þétt saman.

Vantar svona 2-3 bíla kannski erum komnir með far fyrir 12 leikmenn.

KV. SÆTU GAURARNIR Í ÍÞRÓTTUM 101

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Leikur við FC Kompás
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1702 dögum
RSS tengill